top of page
DJÁKNINN Á MYRKÁ - SAGAN SEM ALDREI VAR SÖGÐ
Hryllilegt gamanverk fyrir alla fjölskylduna, byggt á þekktustu draugasögu íslandssögunnar.
Leikstjórn: Agnes Wild
Tónlist: Sigrún Harðardóttir
Leikmyndar og búningahönnun: Eva Björg Harðardóttir
Leikarar: Birna Pétursdóttir og Jóhann Axel Ingólfsson
Handrit: Leikhópurinn
Í Hörgárdal er kirkjustaðurinn Myrká. Sagt er að fyrr á öldum hafi þar búið ungur djákni er þjónaði kirkjunni. Hann átti vingott við unga stúlku, vinnukonu á prestssetrinu Bægisá í næsta dal. Hún hét Guðrún, en hvergi er getið um nafn djáknans.
En hver var þessi djákni?
Hver er saga hans?
Í leikverkinu er lesið á milli línanna og komist að því hver hin raunverulega saga er.
Verkefinið er partur af Gróðurhúsaverkefnum Menningarfélags Akureyrar
Sjá nánar á www.mak.is/is/vidburdir/djakninn-a-myrka






bottom of page