SÖGUR AF NAUTUM
Sprenghlægileg sögustund með lifandi tónlist fyrir 5 ára og eldri.
Sögur af nautum er tónlistar/leiklistar bræðingur þar sem sagðar eru sögur af spænska nautinu Ferdinand og íslenska nautinu sem pissaði á eldinn í sögunni um Búkollu. Sagan af Ferdinand er sögð í gegnum tónsmíð Alan Ridout fyrir fiðlu og sögumann/leikara. Þar fær fiðluleikarinn heldur betur að spreyta sig á flóknum spænskum rythmum og fingraleikfimi og leikarinn bregður sér í hlutverk hins huglausa Ferdinands sem vill ekki vera í nautaati, heldur bara lykta af fallegum blómum og leggja sig í sólinni.
Hin sagan er af nautinu sem pissaði á eldinn í sögunni um Búkollu, en það var enginn annar en Gufunesbolinn. Bolinn er ekki sáttur með þessa útgáfu af Búkollu sem allir þekkja og telur sig vera hina sönnu hetju í sögunni.
Í verkinu koma ýmis hljóðfæri við sögu, fiðla, gítar, trompet og slagverk og tekur sýningin eina kennslustund eða um 30 – 40 mínútur.
Sýningin er partur af List fyrir alla og hefur ferðast í skóla á suðurlandi.
Sjá nánar á https://listfyriralla.is/event/sogur-af-nautum/

